Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 133/2021

Nr. 133/2021 27. janúar 2021

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og sorpeyðingu fyrir heimili og frístundahús í Sveitarfélaginu Hornafirði.

1. gr.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er heimilt að leggja á sérstakt gjald vegna meðferðar úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Árlegt grunngjald vegna sorphirðu, sorpeyðingar og endurvinnslu í sveitarfélaginu er sem hér segir:

Íbúðir.  
Einingargjald sorphirðu á íbúð er 26.400 kr.
Einingargjald sorpeyðingar er 15.900 kr.
Óski greiðendur eftir fleiri sorpílátum greiðist viðbótargjald.  
Sorphirðu og sorpeyðingargjald fyrir 240 l tunnu 22.500 kr.
Lífrænt ílát 19.700 kr.
Græn tunna 19.700 kr.

Hver húseigandi sem greiðir ofangreint gjald fyrir íbúð fær afhent eitt klippikort á ári.

Eitt klipp af klippikorti sem húseigendur fá afhent samsvarar 4 m³. Á hverju klippikorti eru 16 klipp, hvert klipp er 0,25 m³. Aukaklippikort fyrir 4 m³ kostar 9.200 kr. og er miðað við að 0,25 m³ geti verið allt að 25 kg.

Á hvert frístundahús er heimilt að leggja sérstakt gjald vegna sorphirðu og/eða sorpeyðingar. Þar sem sumarbústaðir eru 20 eða fleiri skal leggja á sérstakt gjald fyrir sorphirðu að viðbættu sorpeyðingargjaldi enda verður komið upp gámasvæði við sumarbústaðahverfi með yfir 20 bústöð­um eða fleiri yfir mesta ferðamannatímann frá 1. júní – 1. september. Í sumarhúsahverfum með færri en 20 bústaði eru eingöngu lögð á gjöld vegna sorpeyðingar:

Sorphirðugjald þar sem eru fleiri en 20 frístundahús 4.700 kr.
Sorpeyðingargjald fyrir frístundahús 6.300 kr.

 

2. gr.

Gjald fyrir sorphirðu og sorpeyðingu samkvæmt 1. gr. hér að ofan er lagt á hverja íbúð í lögsagnar­umdæmi sveitarfélagsins og er það innheimt með fasteignagjöldum.

 

3. gr.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með fjár­námi hjá viðkomandi án undangengins dóms, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um með­höndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkom­andi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga, sbr. lokamálsgrein 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunar­varnir nr. 7/1998.

 

4. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 11. gr. samþykktar nr. 236/2018 um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarráði þann 10. desember 2019 og staðfest af bæjar­stjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar þann 12. desember 2019 samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998.

Gjaldskráin tekur gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 1309/2019.

 

Sveitarfélaginu Hornafirði, 27. janúar 2021.

 

Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 10. febrúar 2021