Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1128/2018

Nr. 1128/2018 26. nóvember 2018

REGLUGERÐ
um framkvæmd nethlutleysis.

1. gr.

Innleiðing á EES-gerð.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XI. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. 1.-6. gr. og 8.-10. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2120 frá 25. nóv­ember 2015 um ráðstafanir varðandi opinn netaðgang og um breytingu á tilskipun 2002/22/EB um alþjónustu og réttindi notenda að því er varðar rafræn fjarskiptanet og ‑þjón­ustu og reglugerð (ESB) nr. 531/2012 um reiki á almennum farsímanetum innan Sambands­ins, sem innleidd var í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 92/2016 frá 29. apríl 2016, og birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 1459-1476.

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 41. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 26. nóvember 2018.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 13. desember 2018