Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 730/2020

Nr. 730/2020 21. júlí 2020

REGLUGERÐ
um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta.

1. gr.

Þar sem takmarkaðar rækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði og engar rækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og norðurfjörðum Breiða­fjarðar á fiskveiðiárinu 2019/2020, og á Eldeyjarsvæði almanaksárið 2019, skal á fiskveiðiárinu 2020/2021 úthluta aflamarki sem nemur samtals 869 þorskígildistonnum til báta, sem hafa hlutdeild í rækju á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækju­vertíðanna 1996/1997 – 2005/2006 að frádregnum afla í rækju fiskveiðiársins 2019/2020 á við­komandi svæði. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 140 þorsk­ígildistonn í hlut báta frá Arnarfirði, 120 þorskígildistonn í hlut báta í Ísafjarðardjúpi, 148 þorsk­ígildistonn í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorskígildistonn í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorsk­ígildis­tonn í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorskígildistonn í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorskígildistonn í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildistonn í hlut báts í norðurfjörðum Breiðafjarðar.

 

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðárinu 2019/2020 skal á fiskveiðiárinu 2020/2021 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildistonnum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorskígildistonn í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildistonn í hlut báta við Húnaflóa, 919 þorsk­ígildistonn í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildistonn í hlut báta við Hvalfjörð.

 

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miða við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2020. Upp­bæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:

Tegundir Tonn upp úr sjó Þorskígildistonn
Þorskur 1.472   1.236  
Ýsa  257  196
Ufsi  453  239
Steinbítur   51    25
Gullkarfi 199  141
Keila   8     3
Langa   26   12
Samtals: 2.466   1.852  
 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett, skv. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2020. Jafnframt fellur reglugerð nr. 678/2019, um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fisk­veiða úr gildi frá 1. september 2020.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. júlí 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.


B deild - Útgáfud.: 22. júlí 2020