Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 548/2025

Nr. 548/2025 20. maí 2025

REGLUR
um fyrirkomulag númerabirtingar.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar taka til númerabirtinga, svarnúmerabirtinga og takmarkana þar á. Reglurnar gilda um símtöl og þegar það á við, smáskilaboðasendingar úr símtækjum (SMS/MMS) innan fjarskipta­nets og milli tveggja fjarskiptaneta hvort sem er innanlands eða milli landa.

 

2. gr.

Orðskýringar.

Vísað er til skilgreininga í lögum nr. 70/2022, um fjarskipti, en auk þess hafa neðangreind hugtök eftirfarandi merkingar:

  1. Almenn símaþjónusta: Þjónusta sem er aðgengileg almenningi í þeim tilgangi að senda frá sér eða móttaka innlend eða alþjóðleg símtöl úr tal-, far- eða netsíma, og veitir gjaldfrjálst sam­band við neyðarþjónustu, með notkun númers sem úthlutað hefur verið samkvæmt tilmælum Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) til fjarskiptafyrirtækis.
  2. Áskrifandi: Einstaklingur eða lögaðili sem er aðili að samningi við seljanda almennrar síma­þjónustu um að sá síðarnefndi láti slíka þjónustu í té.
  3. Notandi: Einstaklingur eða lögaðili sem notar almenna símaþjónustu.
    1. A-notandi: Notandi sem stofnar til símtals.
    2. B-notandi: Notandi sem símtali er beint til.
    3. C-notandi: Notandi sem móttekur áframsent símtal frá B-notanda.
  4. Númer: Röð tölustafa sem áskrifendur almennrar símaþjónustu fá úthlutað hjá fjarskipta­fyrirtæki vegna tengingar við fjarskiptanet þess og eru notuð til að auðkenna áskrifendur og tengja við aðra notendur fjarskiptaþjónustu.
  5. Númerabirting: Þegar númer A-notanda er sýnilegt á númerabirti B- eða C-notanda.
  6. Númeraleynd: Þegar númer A-notanda er gert ósýnilegt á númerabirti B- eða C-notanda.
  7. Samningur (sá er vísað er til í 2. tl.): Samningsbundin tengsl milli áskrifenda og þjónustu­veitanda er geta falið í sér eingreiðslu eða reglubundnar greiðslur fyrir þjónustuna sem veitt er eða fyrirhugað er að veita. Fyrirframgreidd kort teljast einnig vera samningur.
  8. Símtal: Tenging sem komið er á með símaþjónustu sem er öllum aðgengileg og leyfir tvíátta fjarskipti á rauntíma.
  9. Svarnúmerabirting: Þegar númer B- eða C-notanda er sýnilegt á númerabirti A-notanda.
  10. Svarnúmeraleynd: Þegar númer B- eða C-notanda er gert ósýnilegt á númerabirti A-notanda.
  11. Þjónustuveitandi: Fjarskiptafyrirtæki sem rekur almenna talsímaþjónustu.
  12. Smáskilaboð: Rafræn skilaboð SMS (Short Message Service) og MMS (Multimedia Messaging Service).

 

3. gr.

Númerabirting.

Fjarskiptafyrirtæki sem reka almenna símaþjónustu samkvæmt reglum þessum skulu bjóða notendum gjaldfrjálsa númerabirtingu.

Óheimilt er að nota röng auðkenni eða númer í þeim tilgangi að blekkja móttakanda símtals eða smáskilaboða (SMS/MMS).

Þegar símtal berst erlendis frá og í íslenskt símanúmer og númer birtist sem íslenskt almennt talsímanúmer sem byrjar á 4xx xxxx eða 5xx xxxx skal númerabirting gerð óvirk.

Ekki skal gera númerabirtingu óvirka í þeim tilfellum sem tekið er á móti símtölum erlendis frá úr íslensku almennu talsímanúmeri í erlent símanúmer hér á landi (er í reiki).

Númerabirting skal ekki gerð óvirk í þeim tilfellum sem hringiflutningur á sér stað í talhólf, enda sé uppruni símtalsins úr almennu talsímanúmeri á Íslandi.

 

4. gr.

Númeraleynd.

A-notandi skal, með einföldum hætti og sér að kostnaðarlausu, eiga kost á að koma í veg fyrir númerabirtingu fyrir hvert símtal um sig.

B- eða C-notandi skal, með einföldum hætti og sér að kostnaðarlausu, miðað við eðlilega notkun þessa möguleika, eiga kost á að útiloka númerabirtingu á mótteknum símtölum.

 

5. gr.

Svarnúmeraleynd.

Þar sem í boði er svarnúmerabirting ber þjónustuveitanda B- eða C-notanda að tryggja að hann eigi þess kost, með einföldum hætti og sér að kostnaðarlausu, að hindra svarnúmerabirtingu til A-notanda.

 

6. gr.

Svarsynjun.

B- eða C-notandi skal eiga kost á því, eftir því sem er tæknilega framkvæmanlegt, með einföldum hætti og áður en símtal er afgreitt, að synja móttöku hringinga með númeraleynd.

 

7. gr.

Áframsending símtala.

Fjarskiptafyrirtæki skulu tryggja að C-notandi geti fengið birt númer A-notanda við áfram­sendingu símtala gegnum B-notanda.

 

8. gr.

Upplýsingaskylda.

Upplýsingar um möguleika númerabirtingar, númeraleyndar, svarnúmerabirtingar og svar­númera­leyndar hjá hverju fjarskiptafyrirtæki sem rekur almenna símaþjónustu, skulu vera aðgengi­legar almenningi með einföldum hætti.

 

9. gr.

Undantekningar.

Verði notandi fyrir ónæði eða óþægindum af völdum símtals, getur hann farið þess á leit við fjarskiptafyrirtæki að það aflétti númeraleynd símtalsins tímabundið í tengslum við beiðni áskrifanda um rakningu slíkra símtala. Þjónustuveitandi mun þó einungis afhenda upplýsingar um auðkenni áskrifandans sem hringir, að undangengnum dómsúrskurði eða í þágu rannsóknar opinbers máls. Um meðferð upplýsinga sem aflað er með þessum hætti fer eftir 3. mgr. 88. gr. laga nr. 70/2022 um fjar­skipti.

Fjarskiptafyrirtæki ber að tryggja að númerabirting sé ávallt til staðar þegar hringt er í neyðar­númerið 112, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 40/2008 um samræmda neyðarsvörun, útkallsnúmer Land­helgis­gæslunnar, 511-3333 og númer vaktstöðvar siglinga, 545-2100.

 

10. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í k-lið 22. gr. laga nr. 70/2022, öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt falla úr gildi eldri reglur nr. 629/2008.

 

Fjarskiptastofu, 20. maí 2025.

 

Hrafnkell V. Gíslason.

Hjalti Pálmason.


B deild - Útgáfud.: 23. maí 2025