1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 262/2024 frá 6. desember 2024, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framseld reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/908 frá 17. janúar 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 að því er varðar fjölda og heiti fastra sérfræðinganefnda á vegum Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 634.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. mars 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
|