1. gr.
Norðurorka hf. selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt gjaldskrá þessari og reglugerð Norðurorku fyrir heitt vatn. Gjaldskráin gildir á öllu orkuveitusvæði Norðurorku. Á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast virðisaukaskattur og önnur gjöld samkvæmt gildandi lögum og reglum á hverjum tíma.
2. gr.
Norðurorka takmarkar allajafna ekki aðgang húsveitu að vatni umfram það er heimæð og veitukerfi gera. Þó er veitunni heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstibreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu hans.
3. gr.
Fyrir afnot af heita vatninu skal greiða (allar veitur nema Ólafsfjörður og Reykjaveita):
A. Vatnsgjald.
Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns.
Grunnverð kr. 113,75
B. Fastagjald.
Norðurorka ákveður mælisstærð fyrir hverja húsveitu. Greiða skal fast gjald sem fer eftir stærð vatnsmælis sem hér segir:
Fast gjald fyrir hvern mæli:
|
Mælir |
Grunnverð kr./dag |
|
15 mm |
61,45 |
|
20 mm |
131,71 |
|
25 mm |
254,63 |
|
32 mm |
491,68 |
|
40 mm |
1.000,92 |
|
50 mm |
1.931,60 |
C. Heimæðagjald. Aðalheimæðar (allar veitur nema Reykjaveita):
|
Þvermál inntaks |
Grunnverð kr. |
|
20 mm heimæð |
463.188,54 |
|
25 mm heimæð |
584.207,38 |
|
32 mm heimæð |
767.758,12 |
|
40 mm heimæð |
1.050.950,61 |
|
50 mm heimæð |
1.496.971,98 |
|
65 mm heimæð |
2.215.569,52 |
|
80 mm heimæð |
3.397.130,40 |
Lengdargjald:
- Lengdargjald í dreifbýli er 5.235,92 kr./m. Lengdargjald er greitt frá stofnlögn að tengistað heimæðar að frádregnum 20 metrum.
- Lengdargjald í þéttbýli er 9.309,32 kr./m. Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðarmarka.
- Sérstakt viðbótar heimlagnagjald þegar ídráttarrör vantar eða það reynist ónothæft 11.126,43 kr./m.
Tengigrindargjald:
Tengigrindargjald er innifalið í heimæðagjaldi en sé óskað eftir auka tengigrind kostar hún kr. 59.781,43.
D. Bráðabirgðaheimæðar:
|
Þvermál |
Grunnverð kr. |
Lengdargjald (kr./m) |
|
20 mm |
50.647,14 |
7.052,51 |
|
25 mm |
50.647,14 |
7.052,51 |
|
32 mm |
50.647,14 |
7.052,51 |
Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra í heimæð til bráðabirgðatengingar.
Bráðabirgðaheimæðar skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.
4. gr.
Ólafsfjörður.
Fast gjald, tengigrind og heimæðagjald er innheimt samkvæmt almennri gjaldskrá, sjá hér að ofan.
Heitt vatn er selt eftir mínútulítrum og vatnsmælum.
Vatnsgjald á mánuði fyrir hvern mínútulítra í hámarksstillingu hemils kr. 1.570,99.
Vatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns kr. 69,62.
5. gr.
Reykjaveita.
Fast gjald, tengigrindargjald og lengdargjöld eru þau sömu og í almennri gjaldskrá, sjá hér að framan.
Heitt vatn er selt eftir vatnsmælum sem mæla jafnt rúmmetrafjölda sem og hitann á vatninu á inntaksstað (framrásarhita) og þar með er hægt að ákvarða kílóvattstundagildi (kWst.) þess vatns sem hver viðskiptavinur fær til afnota. Við ákvörðun kílóvattstunda (kWst.) er bakrásarhiti ákvarðaður með fast gildi 25°C fyrir mæla setta upp árið 2011 og fyrr, en 30°C fyrir mæla setta upp frá árinu 2012 og síðar.
Vatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns samkvæmt rúmmetramælingu er kr. 167,30.
Vatnsgjald fyrir hverja kílóvattstund (kWst.) sé gjaldið samkvæmt kílóvattstundamælingu fyrir mæla með fast gildi bakrásar 25°C er kr. 3,96.
Vatnsgjald fyrir hverja kílóvattstund (kWst.) sé gjaldið samkvæmt kílóvattstundamælingu fyrir mæla með fast gildi bakrásar 30°C er kr. 4,55.
Norðurorka hf. ákvarðar hvort gjald fyrir afnot af vatninu er samkvæmt rúmmetramælingu eða kílóvattstundamælingu. Meginreglan er sú að greitt er samkvæmt kílóvattstundamælingu (kWst.) í Reykjaveitu.
Heimæðagjald.
Grenivík:
|
Þvermál inntaks |
Grunnverð kr. |
|
20 mm heimæð |
609.828,47 |
|
25 mm heimæð |
774.843,61 |
|
32 mm heimæð |
1.025.113,39 |
|
40 mm heimæð |
1.411.247,55 |
|
50 mm heimæð |
2.019.190,04 |
|
65 mm heimæð |
2.998.892,07 |
Dreifbýli:
|
Þvermál inntaks |
Grunnverð kr. |
|
20 mm heimæð |
785.512,25 |
|
25 mm heimæð |
1.003.192,59 |
|
32 mm heimæð |
1.333.441,28 |
|
40 mm heimæð |
1.842.903,39 |
6. gr.
Ýmis ákvæði.
Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp eða ef vatnsmælir, húsveita eða annar búnaður bila þannig að mæling bregst, áætlar veitan vatnsnotkun með hliðsjón af hitaþörf hússins. Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar hefst innheimta samkvæmt gjaldskrá.
Ef heimlagnagjald, þar með talið lengdargjald, stendur ekki undir kostnaði s.s. í frágengnu hverfi er heimæðagjald fyrir nýja eða stækkaða heimæð greitt samkvæmt kostnaðaráætlun eða raunkostnaði samkvæmt nánara samkomulagi við umsækjanda.
Í sumarbústaði, frístundahús, vinnuskúra og þess háttar skal settur skápur á útvegg fyrir inntak heimlagnar samkvæmt nánari leiðbeiningum og skilmálum sem koma fram í heimlagnabæklingi. Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar hefst innheimta lágmarksgjalds samkvæmt gjaldskránni.
Grunnverð fyrir sumarhús, frístundahús, verbúðir, hesthús og sambærileg hús er fast gjald og lágmarksgjald sem samsvarar gjaldi fyrir 300 m³ af heitu vatni eða 12.800 kWst. þar sem orkumæling er.
7. gr.
Innheimtugjald er samkvæmt gjaldskrá viðkomandi innheimtufyrirtækis samkvæmt samningi þar að lútandi.
Ýmis önnur gjöld:
|
|
kr. |
|
Lokunargjald |
3.064,44 |
|
Mælaálestrargjald |
2.145,33 |
|
Seðilgjald |
206,00 |
|
Afgreiðslugjald á vinnutíma |
4.785,47 |
|
Afgreiðslu- og opnunargjald utan vinnutíma |
20.730,97 |
8. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af stjórn Norðurorku, er sett samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 og lögum nr. 159/2002 um stofnun hlutafélags um Norðurorku, staðfestist hér með til að öðlast gildi frá og með 1. janúar 2018 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá Norðurorku hf. nr. 1212/2016.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. desember 2017.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Hreinn Hrafnkelsson.
|