Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 298/2020

Nr. 298/2020 31. mars 2020

REGLUGERÐ
um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga íslenskra skipa með rafrænni afladagbók eða snjalltækjaforriti, jafnt innan sem utan íslensku fiskveiðilögsögunnar.

Öll skip er stunda veiðar í atvinnuskyni eða þörungaslátt skulu skila upplýsingum sem kveðið er á um í reglugerð þessari til Fiskistofu.

 

2. gr.

Upplýsingar sem skráðar eru skv. 3. gr. skulu nýtast í vísindalegum tilgangi fyrir Haf­rann­sókna­stofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, sem eftirlitsgögn fyrir Fiskistofu og Land­helgis­gæslu og til annarra verkefna sem varða stjórnun fiskveiða. Hafrannsóknastofnun er heimilt að veita öðrum rannóknaraðilum aðgang að gögnunum sem ekki eru rekjanleg til einstakra skipa til vísindarannsókna er varða stjórn fiskveiða. Að öðru leyti skulu upplýsingarnar vera trún­aðar­mál milli allar ofangreindra aðila.

 

3. gr.

Skipstjórar skulu skrá eins nákvæmlega og unnt er eftirfarandi upplýsingar:

  1. Nafn skips og skipaskrárnúmer.
  2. Veiðarfæri, gerð og stærð.
  3. Staðarákvörðun (breidd og lengd).
  4. Afli eftir magni og tegundum.
  5. Veiðidagur.
  6. Löndunarhöfn og löndunardagur.
  7. Sjófugl eftir fjölda og tegundum.
  8. Sjávarspendýr eftir fjölda og tegundum.
  9. Upplýsingar um afla, sem veiddur er en sleppt í samræmi við fyrirmæli laga eða annarra stjórnvaldsfyrirmæla.
  10. Upplýsingar um tíma veiðarfæra í sjó, hvenær þau eru lögð og hvenær þau eru tekin upp.

Upplýsingar um afla sem fæst við veiðar, t.d. í hverju togi, kasti eða lögn, skal skrá svo fljótt sem verða má eftir að frágangi hans lýkur.

Í rafrænum afladagbókum skulu færslur vegna hverrar veiðiferðar aðgreindar með greinilegum hætti en í snallsímaforriti skal hver veiðiferð skráð sérstaklega.

Ef fleiri en eitt skip stunda veiðar með sama veiðarfæri í sömu veiðiferð, skal skráð hvaða skip stunda veiðarnar. Aflann skal einungis skrá hjá því skipi sem tekur aflann um borð.

Ef afli í uppsjávartegundum er fluttur milli skipa skal skráð hjá báðum skipum: Upplýsingar um magn eftir tegundum og eftir atvikum afurðum, á milli hvaða skipa aflinn er fluttur og hvort skip­anna er veiðiskip aflans.

Við slátt á þörungum skal skrá hjá hverju skipi um sig, þ.m.t. pramma, upplýsingar um magn þörunga (blautvigt) sem tekið er innan netlaga hverrar fasteignar (sjávarjarðar). Hlutaðeigandi land­eigandi á rétt á aðgangi að upplýsingum úr aflaskráningu um þörungaslátt fyrir sinni landar­eign.

 

4. gr.

Upplýsingum, sem skráðar eru í snjallsímaforrit skal skilað inn í gegnum símanúmer, sem er skráð hjá Fiskistofu.

Aflaskráningu skal vera lokið og aflaupplýsingar sendar til Fiskistofu með rafrænum hætti áður en skip er lagt að bryggju að lokinni veiðiferð.

Fiskistofa getur heimilað vegna sérstakra aðstæðna skil á afladagbók á eyðublaði sem finna má á vefsíðu Fiskistofu.

 

5. gr.

Ef rafræn afladagbók eða snjallsímaforrit bilar í veiðiferð skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu um bilunina svo fljótt sem auðið er. Jafnframt skal skipstjóri skrá eins nákvæmlega og unnt er áætlaðan afla á blað og undirrita áður en skipi er lagt að bryggju að lokinni veiðiferð.

Senda skal aflaupplýsingar innan 24 klukkustunda frá komu skips til löndunarhafnar, á [email protected] á þar til gerðu formi sem finna má á vef Fiskistofu.

 

6. gr.

Skylt er að veita eftirlitsmönnum Fiskistofu og starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands aðgang að upplýsingum sem skráðar eru í afladagbók og veita aðstoð við að sannreyna þær.

 

7. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum, skv. lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengi um nytjastofna sjávar.

 

8. gr.

Reglugerð þessi er sett, skv. lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglu­gerð nr. 746/2016, um afladagbækur.

 

Ákvæði til bráðabirgða.

Heimilt er að skrá afla í afladagbækur á pappírsformi sem Fiskistofa útvegar fram til 31. ágúst 2020.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. mars 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 2. apríl 2020