Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1346/2018

Nr. 1346/2018 21. desember 2018

GJALDSKRÁ
Skagafjarðarveitna. Hitaveita.

I. KAFLI

1. gr.

Skagafjarðarveitur, kt. 681212-0350, í gjaldskrá þessari hér eftir nefndar SKV, selja afnot hitaorku úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi Sveitarfélagsins Skagafjarðar og hafa umráðarétt yfir þeim eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð staðfesta af iðnaðarráðherra fyrir SKV.

2. gr.

SKV skulu láta hverju húsi, sem tengt er við vatnsæðar veitnanna, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. SKV láta setja rennslismæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selda orku við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. SKV ráða gerð rennslismæla og hemla og sjá um viðhald og endurnýjun þeirra.

3. gr.

Einungis starfsmenn SKV mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta. SKV breyta stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrir árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1 mínútulítri. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum eða hálfum mínútulítra.

Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til SKV. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skulu SKV greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða SKV, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

II. KAFLI

4. gr.

SKV reka nú átta aðskilin hitaveitusvæði og dreifikerfi með vatni sem hefur mismunandi efna­innihald og hita. Þessi svæði eru á Sauðárkróki, í Varmahlíð, á Steinsstöðum, í Hjaltadal, á Hofsósi, á Hverhólum og við Langhús og Sólgarða í Fljótum. Gjöld fyrir eininguna af heitu vatni (m³ eða l/mín) verða því mishá eftir svæðum. Fast gjald hjá þeim notendum, sem kaupa heitt vatn eftir hemli, skal vera krónur 1.008 pr. mán.

Gjöld fyrir afnot af heita vatninu eru sem hér segir:

Sauðárkróksveita:
Vatnsgjald kr. 2.503 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Varmahlíðarveita:
Vatnsgjald kr. 3.793 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Steinsstaðaveita:
Vatnsgjald kr. 1.891 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Hjaltadalsveita:
Vatnsgjald kr. 1.891 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Hofsósveita:
Vatnsgjald kr. 2.888 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Sólgarðaveita:
Vatnsgjald kr. 2.503 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Langhúsveita:
Vatnsgjald kr. 4.014 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

Hverhólaveita:
Vatnsgjald kr. 2.503 á mánuði fyrir hvern mín.lítra í hámarksstillingu hemils.

5. gr.

Hitaveitugjöld samkvæmt 4. gr. og 8. gr. verða krafin hvern mánuð og skulu þau greiðast til skrifstofu Skagafjarðarveitna, í bönkum eða pósthúsum. Gjalddagi er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Það eru vanskil, ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 10 daga frá gjalddaga.

III. KAFLI

6. gr.

Heimæðargjald SKV fyrir heitt vatn skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í þéttbýli:

Innra þvermál heimæðar Heimæðargjald, kr. Lengdargjald, kr./m
20 mm 260.590 4.120
25 mm 424.586 4.738
32 mm 641.484 6.098
40 mm 1.126.305    6.613
50 mm 2.086.986    8.858

Ef um sverari heimæðar er að ræða skal greitt samkvæmt raunkostnaði.

Gjaldskrá þessi gildir í skipulögðum hverfum innan lögsagnarumdæmis Sveitarfélagsins Skaga­fjarðar.

Auk heimæðargjalds sem að framan greinir, skal greiða lengdargjald fyrir hvern lengdarmetra lagnar innan lóðarmarka umfram 25 m.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks auka­gjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.

Fyrir stækkun á heimtaug skal greiða samkvæmt raunkostnaði.

Heimæðargjald SKV fyrir heitt vatn skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í dreifbýli fyrir íbúðar­hús og sumarhús:

Innra þvermál heimæðar Heimæðargjald, kr. Lengdargjald, kr./m
≤ 25 mm 591.639 3.605
32 mm 893.834 4.182
40 mm 1.569.308    5.047

Fyrir sverari heimæðar og aðrar byggingar í dreifbýli en íbúðarhús og sumarhús er greitt sam­kvæmt raunkostnaði.

Auk heimæðargjalds sem að framan greinir, skal greiða lengdargjald fyrir hvern lengdarmetra frá stofnlögn umfram 100 m.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks auka­gjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.

Fyrir stækkun á heimtaug skal greiða samkvæmt raunkostnaði.

7. gr.

Gjöld samkvæmt 6. gr. eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar. SKV er heimilt að breyta þeim í samræmi við þær breytingar, sem á nefndri vísitölu verða, að fenginni staðfestingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins hverju sinni.

IV. KAFLI

8. gr.

Samkvæmt ákvæðum í 2. gr. er heimilt að selja heitt vatn til notenda um rúmmetramæli. SKV setja upp slíka mæla og sjá um viðhald og endurnýjun þeirra.

Hjá notendum er kaupa vatn samkvæmt rúmmetramæli er heimilt að innheimta mælaleigu.

Gjald fyrir hvern rúmmetra vatns tekur mið af orkuinnihaldi vatns á hverju svæði og skal vera:

  Sauðárkróksveita: kr. 106,25
  Varmahlíðarveita: kr. 161,31
  Steinsstaðaveita: kr.   80,24
  Hjaltadalsveita: kr.   80,24
  Hofsósveita: kr. 122,88
  Sólgarðaveita: kr. 106,25
  Langhúsveita: kr. 170,66
  Hverhólaveita: kr. 106,25

Stærri notendur þar sem notkun er að lágmarki 100 þúsund rúmmetrar á ári og þar sem heitt vatn er notað sem beinn framleiðsluþáttur, geta sótt um að kaupa heitt vatn á 70% afslætti. Afsláttar­kjörin eiga við þar sem nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitu­kerfinu að mati Skagafjarðarveitna.

Sprotafyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki sem vilja nýta heitavatnið sem beinan framleiðsluþátt geta einnig sótt um tímabundin 70% afslátt á heitu vatni.

Mælaleiga fyrir hvern mánuð skal vera sem hér segir:

  Fyrir mæla 15-20 mm kr. 1.008 pr. mán.
  Fyrir mæla 25-40 mm kr. 2.398 pr. mán.
  Fyrir mæla 50 mm kr. 3.235 pr. mán.
  Fyrir mæla 65 mm kr. 4.052 pr. mán.
  Fyrir mæla 80 mm kr. 4.796 pr. mán.
  Fyrir mæla 100 mm kr. 6.313 pr. mán.
  Fyrir mæla 125 mm og stærri kr. 7.959 pr. mán.

9. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda, sbr. 31. gr. reglu­gerðar fyrir SKV og 79. gr. orkulaga nr. 58/1967 með síðari breytingum.

10. gr.

SKV hafa rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara, sbr. 2. mgr. 28. gr. reglugerðar fyrir SKV.

Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er. Gjaldið skal vera það sama og mánaðarleiga á 65 mm mæli samkvæmt. 8. gr. gjaldskrár þessarar í hvert skipti og gjald fyrir mælaálestur (aukaálestur) skal vera það sama og mánaðarleiga á 25–40 mm mæli samkvæmt 8. gr. þessarar gjaldskrár.

Eftirlitsmanni SKV skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.

Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi reglur um virðisaukaskatt á hverjum tíma.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar, 12. desember 2018 staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 8/2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. desember 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 16. janúar 2019