Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 966/2019

Nr. 966/2019 22. október 2019

AUGLÝSING
um framlengingu á tímabundinni lokun fyrir vetrarakstri vélknúinna ökutækja á svæði á austanverðum Breiðamerkursandi.

Svæði á austanverðum Breiðamerkursandi, sem afmarkast af Veðurá að austan- og sunnan­verðu, Jökulsárlóni að vestanverðu og núverandi ísjaðri Breiðamerkurjökuls að norðanverðu er lokað fyrir umferð vélknúinna ökutækja, skv. ákvörðun þjóðgarðsvarðar suðursvæðis Vatnajökuls­þjóðgarðs. Lokun þessi tekur til vetraraksturs, þ.e. aksturs á snævi þakinni og frosinni jörð. Afmörkun er sýnd á meðfylgjandi korti. Á svæðinu eru engir vegir og gildir því að öðru leyti bann við akstri vélknúinna ökutækja utan vega í Vatnajökulsþjóðgarði, sbr. 4. mgr. 15. gr. laga nr. 60/2007 um Vatnajökuls­þjóðgarð. Lokunin gildir til 30. apríl 2020 og verður þörf fyrir lokun vetur­inn 2020-2021 metin fyrir lok september 2020.

Forsendur lokunarinnar eru eftirfarandi:

Litið er til þess að hér er um að ræða viðkvæmt svæði sem hefur komið undan jökli við hop Breiðamerkurjökuls á síðustu árum og er að mestu leyti ósnortið af manna völdum. Á svæðinu er mikil umferð yfir vetrarmánuði í tengslum við íshellaferðir og jöklagöngur. Akstur á svæðinu gæti haft neikvæðar afleiðingar í för með sér þar sem hætta skapast á að varanleg slóð eða för myndist, jafnvel þótt jörð sé snævi þakin og frosin.

Hluti hins lokaða svæðis var hulinn jökli 1998 og því hluti Vatnajökulsþjóðgarðs frá stofnun hans, en auk þess nær lokunin til svæðis sem bætt var við landsvæði þjóðgarðsins, með reglugerð nr. 730/2017. Tekin verður afstaða til umferðar og nýtingar á svæðinu með viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs eða við næstu endurskoðun hennar.

Ákvörðun þessi byggir á heimild í 7. mgr. 15. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007, sbr. 14. gr. laga nr. 101/2016. Sömu lög kveða á um mótun og gildistöku stjórnunar- og verndar­áætlunar þjóðgarðsins.

Skaftafelli, 22. október 2019.

Helga Árnadóttir,
þjóðgarðsvörður á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 5. nóvember 2019