Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 67/2017

Nr. 67/2017 13. janúar 2017

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 319/2009 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 1. málslið 2. mgr. 5. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Reglum um inn­töku nýnema í hagfræðideild Háskóla Íslands, nr. 188/2012, verður ekki beitt háskólaárið 2017-2018.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðanna „Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda“ í fyrirsögn greinar­innar kemur: Mála- og menningardeild.
  2. Í stað orðanna „deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda“ í 1. og 2. málslið 1. mgr. kemur: mála- og menningardeild.

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 13. janúar 2017.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 27. janúar 2017