Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 843/2022

Nr. 843/2022 29. júní 2022

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði.

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópu-sambandsins, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 1 við EES-samninginn:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2019/819 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 346/2013 að því er varðar hagsmunaárekstra, mat á félagslegum áhrifum og upplýsingar til fjárfesta á sviði evrópskra félagslegra framtakssjóða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2020 frá 30. apríl 2020 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 136-142.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/820 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 345/2013 að því er varðar hagsmunaárekstra á sviði evrópskra áhættufjármagnssjóða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2020 frá 30. apríl 2020 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 143-146.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. og 2. mgr. 16. gr. laga nr. 31/2022, um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 29. júní 2022.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.


B deild - Útgáfud.: 13. júlí 2022