Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 842/2017

Nr. 842/2017 11. september 2017

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó nr. 800/2015.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó nr. 800/2015 hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2010/788/SSUÖ frá 20. desember 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Lýð­stjórnar­lýðveldinu Kongó og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2008/369/SSUÖ, fylgiskjal 1.
  1.1 Ákvörðun ráðsins 2012/811/SSUÖ frá 20. desember 2012 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.1.
  1.2 Ákvörðun ráðsins 2014/147/SSUÖ frá 17. mars 2014 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.2.
  1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/620 frá 20. apríl 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.3.
  1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1173 frá 18. júlí 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.4.
  1.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/2231 frá 12. desember 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.5.
  1.6 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/203 frá 6. febrúar 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.6.
  1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/399 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvörð­unar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.7.
  1.8 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/905 frá 29. maí 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgi­skjal 1.8.
  1.9 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1340 frá 17. júlí 2017 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, fylgiskjal 1.9.
2. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 frá 18. júlí 2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þving­unaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýð­stjórnar­lýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.
  2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 521/2013 frá 6. júní 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.1.
  2.2 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 271/2014 frá 17. mars 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgi­skjal 2.2.
  2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/614 frá 20. apríl 2015 um framkvæmd 4. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þving­unar­aðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýð­stjórnar­lýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.3.
  2.4 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/613 frá 20. apríl 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og niður­fellingu á reglu­gerð (EB) nr. 889/2005, fylgiskjal 2.4.
  2.5 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/1165 frá 18. júlí 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.5.
  2.6 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/2230 frá 12. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgi­skjal 2.6.
  2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/199 frá 6. febrúar 2017 um framkvæmd 5. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þving­unar­­aðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýð­stjórnar­­lýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.7.
  2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/396 frá 7. mars 2017 um framkvæmd 5. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þving­unar­aðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýð­stjórnar­lýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.8.
  2.9 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/904 frá 29. maí 2017 um framkvæmd 2. mgr. 9. gr. reglugerðar (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.9.
  2.10 Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1326 frá 17. júlí 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1183/2005 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn aðilum sem brjóta vopnasölubannið varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, fylgiskjal 2.10.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framan­greindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vefjum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. októ­ber 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar „Skrá yfir varnartengdar vörur“. Tilskipunin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðar­lega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lög­fest­ingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

Fylgiskjöl 1-1.3 eru birt sem fylgiskjöl 1-4 með reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýð­stjórnar­lýðveldið Kongó nr. 800/2015. Fylgiskjöl 2-2.4 eru birt sem fylgiskjöl 5 og 7-10 við sömu reglugerð.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 11. september 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 4. október 2017