Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 10/2018

Nr. 10/2018 3. janúar 2018

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Flúða.

1. Almennt.

Verðskrá þessi gildir fyrir veitusvæði Hitaveitu Flúða.

Skattur á smásöluverð á heitu vatni samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta og virðis­auka­skattur samkvæmt gildandi reglum um virðisaukaskatt bætast við gjöld samkvæmt gjald­skrá þessari miðað við gildandi reglur á hverjum tíma.

2. Varmaorka.

2.1 Fast gjald er háð afköstum rennslismælis en óháð töxtum að öðru leyti.

Fast gjald á mæli kr./dag
Mælastærð DN 15 48,22
Mælastærð DN 20 59,28
Mælastærð DN 25 77,49
Mælastærð DN 32 97,80
Mælastærð DN 40 116,68  
Mælastærð DN 50 194,74  

2.2 Rúmmetragjald.

Varmaorka er afhent í formi heits vatns sem selt er samkvæmt rúmmetramælingu. Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu varmaorku og/eða vegna lækkunar á hita vatnsins.

H 1. Almenn heitavatnsnotkun.

Taxtinn gildir fyrir upphitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

Sala um mæli kr./m³
Rúmmetragjald skv. mælingu 86,27

H 2.

Taxtinn gildir fyrir iðnaðarfyrirtæki og landbúnað.

Atvinnufyrirtæki til framleiðslu 69,28

H 3.

Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir

Garðyrkja 31,29

H 4. Heimæðagjöld.

Heimæðagjöld skiptast eftir málstærð heimtaugar.

Heimæðagjöld – almenn kr.
Málstærð DN 20 mm    219.674
Málstærð DN 25 mm    270.539
Málstærð DN 32 mm    406.274
Málstærð DN 40 mm    811.107
Málstærð DN 50 mm 1.346.905

 

Heimæðagjöld – sumarhús kr.
20 mm 531.402
25 mm 950.851

Heimæðagjöld fyrir lengri heimæðar en 25 m skal reikna sérstaklega

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

Þar sem heimæðagjöld og stofngjöld reiknast sérstaklega greiðast þau þannig að við upphaf verks­ins 65% af kostnaðaráætlun og 35% greiðist þegar lagningu er lokið.

3. Önnur gjöld og ákvæði.

Gjald fyrir aukaálestur hjá notanda 2.309 kr.
Lokunargjald 4.489 kr.

Við stækkun atvinnuhúsnæðis skal semja sérstaklega um gjald vegna stækkunar á heimtaugum og aukningu á vatnsnotkun.

Þeir sem taka vatn gegnum gróðurhús til upphitunar á pökkunar- og geymsluhúsnæði, skulu greiða fast gjald sem hér segir:

Fyrir hvern m³ húsnæðis á mánuði 32,24 kr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn Hrunamannahrepps 2. nóvember 2017 er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1211/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. janúar 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 8. janúar 2018