1. gr.
Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu, eftir því sem nánar er kveðið á um í 2. og 3. gr. Virðisaukaskattur og gistináttaskattur er ekki innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 3. gr.
2. gr.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl:
1. |
Almennt gjald |
kr. |
1.500 |
2. |
13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum |
kr. |
700 |
Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt:
1. |
Almennt gjald |
kr. |
5.800 |
2. |
13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum |
kr. |
2.900 |
Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt:
1. |
Almennt gjald |
kr. |
4.500 |
2. |
13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum |
kr. |
2.250 |
Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.
Á gjald vegna gistingar leggst 11% virðisaukaskattur, auk gistináttaskatts sem er 111 kr. á hverja gistináttaeiningu með virðisaukaskatti.
3. gr.
Gjald fyrir aðra þjónustu:
1. |
Sturtugjald, eitt skipti |
kr. |
500 |
2. |
Rafmagn fyrir húsbíl, hjólhýsi og fellihýsi, einn sólarhringur |
kr. |
900 |
3. |
Afnot af þvottavél, eitt skipti |
kr. |
500 |
4. |
Afnot af þurrkara, eitt skipti |
kr. |
500 |
5. |
Gjald vegna almenns aðgangs að aðstöðu í skála, einn dagur |
kr. |
500 |
6. |
Tjaldleiga, einn sólarhringur |
kr. |
5.000 |
7. |
Sértæk þjónusta við ferðamenn skv. beiðni, sem felur í sér sérstakt vinnuframlag af hálfu starfsmanna þjóðgarðsins og akstur, gjald fyrir hverja klst. |
kr. |
10.000 |
8. |
Kortabæklingur |
kr. |
500 stk. |
9. |
Aðrir bæklingar |
kr. |
350 stk. |
4. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði, nr. 130/2013.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 21. september 2015.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Stefán Guðmundsson.
|