Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1047/2017

Nr. 1047/2017 20. nóvember 2017

REGLUGERÐ
um (85.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 194/2017, frá 27. október 2017, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1145 frá 8. júní 2017 um töku tiltekinna fóðuraukefna af markaði, sem voru heimiluð samkvæmt tilskipun ráðsins 70/524/EBE og 82/471/EBE, og um niðurfellingu á úreltum ákvæðum sem heimila þessi fóðuraukefni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74, frá 16. nóvember 2017, bls. 9.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. nóvember 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2017