Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 391/2022

Nr. 391/2022 30. mars 2022

GJALDSKRÁ
vegna umsókna fyrir framleiðslu, markaðssetningu eða innflutning matvæla með íblönduðu koffíni.

1. gr.

Gildissvið.

Fyrir leyfi Matvælastofnunar samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 327/2010 um gildistöku reglu­gerðar Evrópusambandsins nr. 1925/2006 um íblöndun vítamína og steinefna og tiltekinna annarra efna í matvæli, innheimtir stofnunin gjald af leyfisumsækjendum samkvæmt gjaldskrá þessari.

Tímagjald samkvæmt gjaldskrá þessari er kr. 9.818.

 

2. gr.

Forskoðun.

Matvælastofnun innheimtir gjald vegna forskoðunar á matvælum sem samanstendur af móttöku umsóknar, forskoðun, ákvörðun um áhættumat og umsýslu, kr. 19.635 (2 klst.).

 

3. gr.

Áhættumat.

Matvælastofnun innheimtir í kjölfar forskoðunar gjald með eftirfarandi hætti vegna mats á áhættu, skoðunar á áhættumati, umsýslu og útgáfu leyfis. Kostnaður fer eftir því hvort og til hve margra utanaðkomandi sérfræðinga þarf að leita við áhættumatið.

Aðgerð Kostnaður kr.
Mat Matvælastofnunar á áhættu (8 klst.) 78.540
Mat Matvælastofnunar á áhættu – sams konar vara áður skoðuð (4 klst.) 39.270
Mat áhættu og mat á umsögn/-um ytri aðila (4 klst.) 39.270
Endurmat/-skoðun á áhættumati frá stjórnvaldi annars ríkis (4 klst.) 39.270
Ritun rökstuðnings vegna ákvörðunar (2 klst.) 19.635
Umsögn frá Rannsóknarstofu HÍ í næringarfræðum (8 klst.) 98.400
Umsögn frá embætti landlæknis (8 klst.) 80.000
Umsögn frá Rannsóknarstofu HÍ í lyfja- og eiturefnafræðum (8 klst.) 115.864

 

4. gr.

Innheimta.

Gjalddagi skal vera 15 dögum frá útgáfu reiknings. Eindagi gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er 15 dögum eftir gjalddaga. Heimilt er að krefjast dráttarvaxta af ógreiddri fjárkröfu frá og með gjalddaga og fram að greiðsludegi, sé reikningur ekki greiddur á eindaga. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga, skal viðkomandi umsókn um leyfi vísað frá og hún felld niður.

 

5. gr.

Annað.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 4. gr. reglugerðar nr. 327/2010 og 25. og 26. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi og á sama tíma fellur gjaldskrá nr. 211/2018 brott.

 

Matvælaráðuneytinu, 30. mars 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Kolbeinn Árnason.


B deild - Útgáfud.: 4. apríl 2022