1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar:
- 2. málsl. hljóðar svo: Um rýmisþörf í húsi fer samkvæmt A-lið viðauka I og skal á hverjum tíma vera hægt að sýna fram á að slíkt rými sé til staðar í aðgengilegri fjarlægð fyrir vetrarfóðraðar kindur og geitur.
- Við bætist nýr 3. málsl. svohljóðandi: Eigandi þarf að geta sýnt fram á að hann geti hýst allt sitt sauðfé og geitfé með skömmum fyrirvara ef válynd veður verða.
2. gr.
Bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar orðast svo: Fjárhús og geithús sem byggð eru fyrir gildistöku reglugerðar þessarar skulu uppfylla skilyrði 4. mgr. 14. gr. fyrir 31. desember 2022.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 55/2013, um velferð dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. júní 2021.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
|