Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 501/2020

Nr. 501/2020 20. maí 2020

REGLUGERÐ
um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2123 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar reglur um í hvaða tilvikum og hvaða skilyrði sannprófun auðkenna og eftirlit með ástandi tiltekinna vara má fara fram á eftirlitsstöðum og sannprófun skjala má fara fram annars staðar en á landamæraeftirlitsstöð (varðandi matvæli, fóður o.fl.).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2020, frá 7. febrúar 2020, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2123 frá 10. október 2019 um við­bætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar reglur um í hvaða tilvikum og við hvaða skilyrði sannprófun auðkenna og eftirlit með ástandi tiltekinna vara má fara fram á eftirlitsstöðum og sannprófun skjala má fara fram annars staðar en á landa­mæraeftirlitsstöð. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 26, frá 23. apríl 2020, bls. 952.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi en ákvæði 3. mgr. 2. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2019/2123 taka gildi frá og með 13. desember 2023.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. maí 2020