Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 283/2020

Nr. 283/2020 31. mars 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1227/2019, um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2020.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir almenn ákvæði reglugerðar þessarar um skyldu til fyrirframgreiðslu, gjalddaga, sbr. ákvæði 4. gr., og umsóknir um breytingar á fyrirframgreiðslu er lögaðilum heimilt án umsóknar að ákveða hvort þeir greiði fyrirframgreiðslu tekjuskatts lögaðila, samkvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, upp í álagningu 2020 á gjalddögunum 1. apríl, 1. maí og 1. júní, en eindagi er mánuði eftir gjalddaga. Ákvæði þetta á ekki við um fyrirframgreiðslu sérstaks fjársýsluskatts, sérstaks skatts á fjármála­fyrirtæki og jöfnunargjalds alþjónustu.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í a-lið 5. gr. laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 25/2020 öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 31. mars 2020.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 31. mars 2020