Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 109/2018

Nr. 109/2018 17. janúar 2018

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1042/2003 um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði í læknadeild Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 4. málsl. 2. mgr. 5. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Nemandi skal ná lágmarkseinkunn 5,0 að meðaltali í spurningum um siðfræðileg álitaefni.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum heilbrigðis­vísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opin­bera háskóla, sbr. 9. mgr. 102. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 17. janúar 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 31. janúar 2018