Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 95/2021

Nr. 95/2021 18. janúar 2021

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambands­ins, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæði og bókun 1 við EES-samninginn:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/867 um flokka ráðstafana sem vernda skal við hlutaframsal eigna skv. 76. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187/2019 frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi ESB nr. 54 frá 13. ágúst 2020, bls. 14-19.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/860 um nánari tilgreiningu á aðstæðum þar sem nauðsynlegt er að veita undanþágu frá beitingu heimilda til niðurfærslu eða umbreytingar skv. 3. mgr. 44. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB sem kemur á ramma um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 237/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 54 frá 13. ágúst 2020, bls. 19-29.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. mgr. 56. gr., 3. mgr. 74. gr., 2. mgr. 75. gr. og 2. mgr. 76. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 18. janúar 2021.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Hjörleifur Gíslason.


B deild - Útgáfud.: 1. febrúar 2021