Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1584/2022

Nr. 1584/2022 27. desember 2022

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar er heimilt að leggja á árlegt sorphirðugjald (urðunar- og sorp­hreinsi­gjald).

 

2. gr.

Sorphirðugjaldið er lagt á hverja íbúð í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar og er það innheimt með fasteignagjöldum eða á annan hátt eftir því sem við verður komið og þá með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Auk þess er lagt hálft íbúðargjald á frístundahús sem innheimt er með sama hætti.

Búrekstraraðilum er gefinn kostur á að greiða sérstaklega fyrir ílát undir búrekstrarúrgang, flutning hans og förgun samkvæmt gjaldskrá þessari. Þá er lagt á búfjáreigendur sérstakt gjald til að standa straum af kostnaði við förgun dýraleifa og tekur gjaldið mið af því að það standi undir kostnaði við förgunina.

 

3. gr.

Sorphirðugjaldið og fyrirkomulag móttöku á endurvinnslustöð á Dalvík er sem hér greinir:

  1. Íbúðir, sorphirðugjald, kr. 67.027.
  2. Frístundahús, sorphirðugjald, kr. 33.514.
  3. Í upphafi árs er úthlutað einu klippikorti á íbúð (16 klipp) og sumarhús (8 klipp) sem afhent eru í þjónustuveri Ráðhússins á Dalvík. Notendur þurfa að framvísa klippikortinu til að komast inn á endurvinnslustöðina á Dalvík. Leigjendur verða að nálgast kortin hjá leigusala eða að kaupa sér kort.
  4. Klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi án greiðslu. Skylt er að hafa klippikortið meðferðis þegar farið er á endurvinnslustöðina hvort sem um gjaldskyldan eða ógjaldskyldan úrgang er að ræða.
  5. Hvert klipp er fyrir 0,25 m³ sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Ef kort klárast verður hægt að kaupa aukakort á kr. 15.764.
  6. Rekstraraðilar geta keypt klippikort í þjónustuveri á kr. 38.362 með 16 klipp fyrir 0,25 m³ alls 4 m³.
  7. Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald frá íbúðum og sumarhúsum, svo sem: pappaumbúðum, plastumbúðum, hjólbörðum, ýmsum spilliefnum og úreltum ökutækjum.

 

4. gr.

Úrvinnslugjald vegna úrgangs frá búrekstri og dýraleifa er eftirfarandi:

  1. 240 lítra tunna fyrir almennan úrgang losuð tvisvar í mánuði 46.094 kr./ári.
  2. 360 lítra tunna fyrir almennan úrgang losuð tvisvar í mánuði 61.462 kr./ári.
  3. 240 lítra endurvinnslutunna losuð einu sinni í mánuði 22.826 kr./ári.
  4. Gjald fyrir eyðingu dýraleifa er lagt á heildarfjölda hverrar búfjártegundar samkvæmt búfjár­eftirlitsskýrslu og er eftirfarandi:
    Nautgripir 1.406 kr./grip Sauðfé og geitfé 258 kr./grip
    Hross 552 kr./grip Grísir 913 kr./grip

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 29. nóvember 2022, er staðfest af Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra samkvæmt heimild í 8. gr. samþykktar um sorphirðu sveitafélaga á Norðurlandi eystra nr. 541/2000, samkvæmt lögum nr. 55/2003 um með­höndlun úrgangs og ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum.

Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2023, um leið fellur gjaldskrá um sorphirðu í Dalvíkur­byggð nr. 1528/2021 úr gildi.

Samþykkt á fundi byggðarráðs Dalvíkurbyggðar 24. nóvember 2022.

 

Dalvíkurbyggð, 27. desember 2022.

 

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2022