Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 263/2020

Nr. 263/2020 13. mars 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 950/2017, um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins.

1. gr.

1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar um viðmiðunarfjárhæðir orðist svo:

Reglugerðin gildir um sérleyfi þar sem áætlað verðmæti samnings, án virðisaukaskatts, er jafnt eða meira en 697.439.000 kr.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1827 frá 30. október 2019 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/23/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæð vegna sérleyfa.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 12. gr. laga nr. 120/2016 um opinber inn­kaup.

Reglugerðin öðlast þegar gildi en við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 176/2018 um breytingu á reglugerð nr. 950/2017, um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmið­unar­fjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 13. mars 2020.

 

F. h. r.

Sigurður H. Helgason.

Hrafn Hlynsson.


B deild - Útgáfud.: 27. mars 2020