Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 624/2021

Nr. 624/2021 31. maí 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr.

Innleiðing.

Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2036 frá 9. desember 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um hæfni og þjálf­unaraðferðir fyrir flugliða og frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2021 frá 23. apríl 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 124-131.

 

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 37. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 31. maí 2021.

 

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


B deild - Útgáfud.: 31. maí 2021