Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 849/2023

Nr. 849/2023 14. ágúst 2023

REGLUGERÐ
um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024 og almanaksárið 2024.

I. KAFLI

Veiðileyfi í atvinnuskyni.

1. gr.

Veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Um veitingu leyfa til veiða í atvinnuskyni fer eftir 5. gr. laga um stjórn fiskveiða.

 

II. KAFLI

Heildarafli, frádráttur, aflamark og ráðstöfun.

2. gr.

Aflamark fiskveiðiársins 2023/2024.

Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum, frádráttur sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða og úthlutun Fiskistofu á aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar fiskiskips í við­komandi tegund er sem hér segir:

Tegund Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar
  1. Þorskur 209.194 11.087 198.107
  2. Ýsa 74.711 3.960 70.751
  3. Ufsi 66.418 3.520 62.898
  4. Steinbítur 8.344 442 7.902
  5. Gullkarfi 36.462 1.932 34.530
  6. Keila 4.559 242 4.317
  7. Langa 5.964 316 5.648
  8. Djúpkarfi 0 0 0
  9. Litli karfi 569 30 539
10. Grálúða 13.463 714 12.749
11. Sandkoli 361 19 342
12. Skrápflúra 0 0 0
13. Skarkoli 7.830 415 7.415
14. Langlúra 1.476 78 7.398
15. Þykkvalúra/sólkoli 971 51 920
16. Skötuselur 188 10 178
17. Humar 0 0 0
18. Íslensk sumargotssíld 87.634 4.645 82.989
19. Blálanga 259 14 245
20. Hlýri 296 16 280
21. Gulllax 12.080 640 11.440
22. Úthafsrækja 5.022 266 4.756
23. Rækja við Snæfellsnes 0 0 0

 

Aflamark í botnfiski miðast við slægðan fisk með haus nema í gullkarfa, litla karfa, gulllaxi og djúp­karfa sem miðast við óslægðan fisk. Aflamark í uppsjávarfiski miðast við óslægðan fisk.

 

3. gr.

Aflamark fiskveiðiársins 2023/2024 fyrir viðkomandi svæði.

Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum fyrir viðkomandi svæði, frá­dráttur sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða og úthlutun Fiskistofu á aflamarki á grundvelli afla­hlutdeildar fiskiskips í viðkomandi tegund fyrir viðkomandi svæði er sem hér segir:

Tegund/svæði Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar
͏͏1. Hörpudiskur: 75 4 71
Breiðasund 50 3 47
Hvammsfjörður 25 1 24
2. Rækja á grunnslóð: 0 0 0
Arnarfjörður      
Ísafjarðardjúp      
3. Ígulker: 194 10 184
Svæði A 49 3 46
Svæði B 87 5 82
Svæði C 58 3 55
4. Sæbjúgu: 2.546 135 2.411
Svæði A – Norður-Aðalvík 164 9 155
Svæði B – Vestfirðir, miðsvæði 74 4 70
Svæði C – Vestfirðir, suðursvæði 40 2 38
Svæði D – Utanverður Breiðafjörður 45 2 43
Svæði E – Faxaflói 383 20 363
Svæði F – Austurland, norðursvæði 340 18 322
Svæði G – Austurland, miðsvæði 1.220 65 1.155
Svæði H – Austurland, suðursvæði 315 17 298

 

4. gr.

Aflamark almanaksársins 2024.

Á árinu 2024 er leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum, frádráttur sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, ráðstöfun skv. 10. gr. b laga um stjórn fiskveiða og úthlutun Fiskistofu á aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar fiskiskips í viðkomandi tegund sem hér segir:

Tegund Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar aflamarki á grund­velli aflahlutdeildar
1. Kolmunni 0 0 0
2. Makríll: 0 0 0
Til úthlutunar á grundvelli afla­hlut­deildar skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006      
Til ráðstöfunar skv. 10. gr. b. laga nr. 116/2006      
3. Norsk-íslensk síld 0 0 0
4. Norður-Íshafsþorskur: 0 0 0
Til úthlutunar innan efnahagslögsögu Noregs      
Til úthlutunar innan efnahagslögsögu Rússlands      
5. Úthafskarfi 0 0 0

 

5. gr.

Ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla.

Ráðstöfun afla tilgreindur í tonnum sem dreginn er frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða er sem hér segir:

Tegund Skel- og rækjubætur Byggðakvóti til fiskiskipa Byggðakvóti Byggða-stofnunar Frístunda-veiðar Strand­veiðar Línu­ívilnun
Tonn Þorskígildis­tonn Tonn Þorskígildis­tonn Tonn Tonn Tonn Tonn
1. Þorskur 1.260 1.058 3.300 2.772 3.886 200 10.000 1.100
2. Ýsa 450 351 1.300 1.016 1.291 0 0 700
3. Ufsi 400 225 1.300 732 827 0 1.000 0
4. Steinbítur 50 21 150 62 71 0 0 175
5. Gullkarfi 220 134 300 183 413 0 100 15
6. Keila 27 7 50 14 25 0 0 15
7. Langa 36 18 100 51 71 0 0 20
Samtals: 2.442 1.815 6.500 4.829 6.584 200 11.100 2.025

 

6. gr.

Sérstök úthlutun til skel- og rækjubáta.

Við útreikning uppbóta vegna rækjubáta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækju­vertíðanna 1996/1997–2005/2006 að frádregnum afla í rækju fiskveiðiársins 2022/2023 á viðkomandi svæði að teknu tilliti til heildarráðstöfunar skel- og rækjubóta skv. 5. gr.

Við útreikning uppbóta vegna skelbáta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðafla áranna 1998 til 2007 að teknu tilliti til heildarráðstöfunar skel- og rækjubóta skv. 5. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2023. Verð­mæta­stuðull er 0,52 miðað við þorskígildi fyrir rækju og 0,32 miðað við þorskígildi fyrir hörpu­disk. Uppbæturnar í þorskígildistonnum skulu skiptast á tegundir tilgreindar í 5. gr. samkvæmt eftir­farandi töflu:

Úthlutun/bátar Þorskígildistonn
͏͏1. Úthlutun til rækjubáta: 807
Frá Arnarfirði 84
Í Ísafjarðardjúpi 94
Við Húnaflóa 153
Við Skagafjörð 158
Á Skjálfanda 72
Við Öxarfjörð 208
Á Eldeyjarsvæði 24
Í Norðurfjörðum Breiðafjarðar 14
2. Úthlutun til skelbáta: 1.008
Frá Arnarfirði 7
Við Húnaflóa 29
Við Breiðafjörð 778
Við Hvalfjörð 21
Samtals: 1.815

 

7. gr.

Ráðstöfun og nýting línuívilnunar.

Línuívilnun skal skiptast þannig innan fiskveiðiársins:

Tegundir/
tímabil
1. September – nóvember 2. Desember – febrúar 3. Mars – maí 4. Júní – ágúst Samtals
1. Þorskur 350 400 320 30 1.100
2. Ýsa 340 220 90 50 700
4. Steinbítur 55 50 60 10 175
5. Gullkarfi 4 4 5 2 15
6. Keila 6 4 4 1 15
7. Langa 9 6 4 1 20

 

Fiskistofa fylgist með línuafla og tilkynnir ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að viðmiðunar­afla hvers tímabils verði náð. Náist ekki að veiða viðmiðunarafla einhvers tímabils bætast ónýttar heimildir við viðmiðunarafla næsta tímabils á eftir. Fiskistofa tilkynnir síðan frá hvaða degi tiltekinn afli reiknast að fullu til aflamarks.

 

III. KAFLI

Skiptimarkaður með aflamark.

8. gr.

Fiskistofa skal sjá um framkvæmd skipta, sbr. 6. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða og annast skiptimarkað fyrir aflamark.

Við framkvæmd skiptimarkaðar skal Fiskistofa auglýsa hverju sinni eftir tilboðum í það magn afla­marks sem ráðherra ákveður. Auglýsa skal eftir tilboðum í tiltekið magn aflamarks í einstakri tegund í skiptum fyrir aflamark í einni af eftirfarandi tegundum: þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa, svo lengi sem aflamark er til ráðstöfunar. Tilboðsfrestur og -skilmálar skulu birtast með auglýsingu á heimasíðu Fiskistofu. Þegar tilboð berst Fiskistofu er það bindandi fyrir aðila. Þó er aðila heimilt að afturkalla tilboð sitt enda berist afturköllunin Fiskistofu áður en tilboðs­frestur er liðinn. Fiskistofu er einungis heimilt að veita upplýsingar um tilboð eftir að tilboðsfrestur er liðinn og skal þá birta upplýsingarnar á heimasíðu sinni. Birta skal einungis upplýsingar um samþykkt tilboð.

Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal útgerðaraðili skips tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðið er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður.

Fiskistofa skal samþykkja það tilboð sem hæst er. Við mat tilboða skal Fiskistofa, þar sem tilboð geta falið í sér mismunandi tegundir sem endurgjald, miða við meðalverð tegunda í viðskipt­um með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, undanfarna 30 daga eða eftir atvikum síðasta mánuð sem viðskipti voru með tegund. Ef hæstu tilboð eru jöfn skal magni skipt hlutfallslega á milli tilboðs­gjafa. Ef hæsta tilboð er aðeins í hluta þess magns sem í boði er skal það samþykkt. Síðan skal næst hæsta tilboðið samþykkt, þar til því aflamarki sem var í boði hefur verið ráðstafað.

Ef aflamark í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu eða gullkarfa sem látið hefur verið í skipt­um, er umfram það aflamark sem innheimta skal, er heimilt að bjóða þær tegundir á skiptimarkaði.

Óheimilt er að framselja aflaheimildir í makríl sem keyptar eru á skiptimarkaði.

Aflamark sem látið er í skiptum telst ekki flutt af skipi í skilningi 15. gr. laga um stjórn fisk­veiða.

 

IV. KAFLI

Skipting leyfilegs afla.

9. gr.

Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark/krókaaflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af afla­hlutdeild/krókaaflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildar­aflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

 

V. KAFLI

Krókaaflamarksbátar.

10. gr.

Bátum, sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, skal úthlutað krókaaflamarki í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu, blálöngu, litla karfa, hlýra og gullkarfa á grundvelli krókaaflahlutdeildar þeirra. Um krókaaflahlutdeild og krókaaflamark gilda sömu reglur um útreikning, nýtingu og framsal og gilda um aflahlutdeild og aflamark nema kveðið sé á um annað í lögum eða reglugerð þessari.

Bátum sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, er einungis heimilt að stunda veiðar með línu og handfærum nema annað leiði af lögum og reglum sem gilda um tilteknar veiðar. Afli sem fæst við slíkar veiðar reiknast til aflamarks bátsins.

Heimilt er að flytja til krókaaflamarksbáts aflamark í öðrum tegundum botnfisks en tilgreindar eru í 1. mgr. þessarar greinar. Einnig er heimilt að flytja aflamark í ufsa og þorski frá krókaafla­marksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu. Jafnframt er heimilt að flytja aflamark í steinbít frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í þorski, ýsu og löngu. Veiði bátur aðrar tegundir en hann hefur krókaaflamark í, skal skerða aflamark hans í öðrum tegundum, skv. 1. mgr. 11. gr. laga um stjórn fisk­veiða og reglum settum samkvæmt þeim ákvæðum. Hverjum báti skal þó heimilt, sbr. 7. gr. laganna, án þess að til skerðingar komi, að veiða allt að 2,0% af heildarafla sínum í kvótabundnum botnfisk­tegundum, öðrum en þeim sem tilgreindar eru í 1. mgr., þó þannig að afli í einni tegund fari aldrei yfir 1% af heildarafla bátsins.

 

VI. KAFLI

Útreikningur aflamarks.

11. gr.

Þegar umreikna skal óslægðan fisk í slægðan skal margfalda magn með slægingarstuðli og þegar umreikna skal slægðan fisk í óslægðan skal deila magni með slægingarstuðli fyrir þær tegundir sem tilgreindar eru í töflunni hér að neðan.

Tegund Slægingarstuðull
Þorskur 0,84
Ýsa 0,84
Ufsi 0,84
Grálúða 0,92
Skarkoli 0,92
Sandkoli 0,92
Skrápflúra 0,92
Langlúra 0,92
Þykkvalúra 0,92
Steinbítur 0,90
Keila 0,90
Skötuselur 0,90
Langa 0,80
Blálanga 0,80

 

Þegar umreikna skal slitinn humar yfir í óslitinn skal margfalda vegið magn humarhala með 3,25. Þegar umreikna skal óslitinn humar yfir í slitinn humar skal deila í vegið magn óslitins humars með 3,25.

Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við margföldunarstuðulinn 3,4.

Þorskur styttri en 50 cm (27 cm hausaður) og ufsi styttri en 50 cm (31 cm hausaður), ýsa styttri en 45 cm (26,5 cm hausuð) og gull- og djúpkarfi styttri en 33 cm teljast að hálfu til aflamarks, enda fari afli undir áðurgreindum stærðarmörkum ekki yfir 10% af viðkomandi tegund í veiðiferð. Undirmálsafla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega af löggiltum vigtarmanni. Þó er heimilt að ákvarða magn undirmáls í gull- og djúpkarfaafla við endurvigtun í vinnsluhúsi. Skal gullkarfa og djúpkarfa sem þannig er flokkaður frá í vinnsluhúsi til ákvörðunar á magni undirmáls, haldið aðgreindum frá öðrum afla. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um afla sem flakaður er um borð í veiðiskipi. Hausaðan fisk skal mæla frá sporðsenda að gotrauf.

Komi afli í veiðarfæri skips, sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt, sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks enda sé honum haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega. Þennan afla er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.

Heimilt er skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla, sem viðkomandi skip veiðir á fiskveiðiárinu og er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega.
  2. Aflinn sé seldur á uppboði á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og andvirði hans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins, sbr. lög um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávar­afla.
  3. Heimildin skiptist í fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. Ekki er heimilt að flytja ónýttar heimildir milli tímabilanna. Þó má miða ýsuafla sem fæst sem meðafli eða meðafla við grásleppuveiðar, við heimild fiskveiðiársins í heild, enda sé sá afli gerður upp í lok þess.

Um heimild til veiða umfram aflamark í einstökum fisktegundum sem skerðir aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega gilda ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða.

 

12. gr.

Þegar meta skal til hvaða fiskveiðiárs tiltekinn afli telst, skal miða við hvenær afla er landað hér á landi. Þannig telst afli sem landað er 1. september 2023 eða síðar til fiskveiðiársins 2023/2024, enda þótt veiðiferð hefjist fyrir upphaf þess fiskveiðiárs. Afli sem teljast skal til almanaksársins 2024 er sá afli sem landað er 1. janúar 2024 eða síðar innan ársins.

Sigli skip með eigin afla á erlendan markað, skal afli teljast til þess fiskveiðiárs, þá er skipið sannan­lega hættir veiðum fyrir siglingu.

 

VII. KAFLI

Framsal aflamarks og aflahlutdeildar.

13. gr.

Þegar fiskiskipi hefur verið úthlutað aflamarki, er heimilt að flytja aflamarkið á milli fiskiskipa enda leiði flutningurinn ekki til þess að veiðiheimildir skipsins verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Krókaaflamark verður aðeins flutt til báts, sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 4. gr. laga um stjórn fiskveiða.

Á hverju fiskveiðiári er heimilt að flytja af fiskiskipi 50% þess aflamarks sem skipi var úthlutað í þorskígildum talið á grundvelli verðmætahlutfalla einstakra tegunda. Auk þess er heimilt að flytja frá skipi það aflamark í einstökum tegundum sem flutt hefur verið til skips. Heimilt er Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings á aflamarki vegna varan­legra breytinga á skipa­kosti útgerða eða þegar skip hverfur úr rekstri um lengri tíma vegna alvarlegra bilana eða sjótjóns.

Tilkynna skal Fiskistofu um flutning aflamarks á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann. Í tilkynningunni skulu koma fram upp­lýsingar um nöfn og skipaskrárnúmer þeirra skipa sem aflamark er flutt á milli og magn aflamarks, auk upplýsinga um verð aflamarks nema skipin séu í eigu sama aðila. Eigandi og útgerðaraðili þess skips sem aflamarkið er flutt frá skulu undirrita og leggja fram tilkynningu um flutning.

Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Skal sá samningur uppfylla kröfur sem Verðlagsstofa skiptaverðs gerir, sbr. lög um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. Telji Verðlagsstofa skipta­verðs að gildissvið laganna nái ekki yfir við­komandi skip, skal staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs lúta að því.

Sá sem tilkynnir um flutning aflamarks skal greiða flutningsgjald fyrir hverja tilkynningu sam­kvæmt gjaldskrá Fiskistofu. Gjald­dagi reiknings er við útgáfu hans og eindagi 15 dögum síðar. Gjaldið er óendurkræft. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga er Fiskistofu heimilt að stöðva frekari flutning aflamarks frá og til við­komandi fiskiskips.

Heimilt er Fiskistofu að gera þjónustusamninga um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa sem eru í eigu sama einstaklings eða lögaðila og skal greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu fyrir slíka samninga fyrir hvert fiskveiðiár. Sækja skal til Fiskistofu um gerð þjónustu­samnings um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. Á umsóknar­eyðublöðunum skulu koma fram þær upplýsingar sem Fiskistofa telur nauðsynlegar og óskar þar eftir. Verði breytingar á atriðum sem útgerð hefur tilgreint í umsókn sinni skal hlutað­eigandi útgerð tilkynna Fiskistofu skriflega um breytingarnar án tafar.

Útgerð ber alfarið ábyrgð á öllum rafrænum tilkynningum um flutning aflamarks sem fram­kvæmdar eru samkvæmt þjónustusamningi hennar við Fiskistofu og skal útgerðin tryggja að óvið­komandi aðilar komist ekki yfir aðgang hennar til að tilkynna Fiskistofu rafrænt um flutning afla­marks. Þjónustusamningur um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks fellur úr gildi verði van­skil á greiðslu gjalds fyrir samninginn og ef hlutaðeigandi útgerð hefur brotið gegn reglum er gilda um flutning aflamarks eða skilyrðum sem sett hafa verið varðandi rafrænar tilkynningar um flutning afla­marks.

Fiskistofa skal daglega birta aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á.

Tilkynning um flutning aflamarks skal hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiði­tímabili lýkur.

 

14. gr.

Beiðni um flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu fyrirfram og á því formi sem Fiskistofa gerir kröfu um, þ.m.t. með undirritun eiganda skips og vottun. Krókaafla­hlutdeild verður aðeins flutt til báts sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðar­mörk sem kveðið er á um í 6. gr. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókar­vottorð þess skips sem flutt er frá auk skriflegs samþykkis eftirgreindra aðila:

  1. þeirra er þinglýst samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991,
  2. þeirra, sem eiga þinglýsta kvöð á skipinu þar sem kveðið er á um að framsal aflahlutdeildar sé óheimilt án samþykkis kvaðarhafa,
  3. þinglýst samþykki þeirra, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998.

Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.

Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en einum mánuði fyrir lok fiskveiðiárs. Berist umsókn innan mán­aðar, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks komandi fiskveiðiárs.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, ein­stak­linga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en til­greint er í 13. gr. laga um stjórn fiskveiða. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaafla­hlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

 

VIII. KAFLI

Veiðiskylda.

15. gr.

Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal afla­hlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. þorskígildisstuðlum. Viðmiðunar­hlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna.

Tefjist skip frá veiðum í a.m.k. fjóra mánuði vegna tjóns, meiri háttar bilana eða endurbóta hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein.

 

IX. KAFLI

Ýmis ákvæði.

16. gr.

Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla samkvæmt ákvæðum III. kafla laga um umgengni um nytjastofna sjávar og reglu­gerðar um vigtun og skráningu sjávarafla.

Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiski­stofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynning­unni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kol­munna, tún­fiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi.

Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni, skv. 4. mgr., enda hafi afli og afla­samsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða innan og utan lögsögunnar.

Þorsk-, ýsu- og ufsaveiðar með hringnót eru bannaðar.

 

17. gr.

Útgerðum skipa sem fengið hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til.

Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur, sbr. reglugerð um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga.

Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla á því formi, sem Fiskistofa ákveður, sbr. reglugerð um skýrsluskil vegna viðskipta með sjávarafla.

 

18. gr.

Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um stjórn fiskveiða, enda séu engin veiðarfæri um borð önnur en handfæri án sjálfvirkni­búnaðar og/eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt.

Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða, skv. 1. mgr., skulu til­kynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst.

 

19. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

Um áminningar og sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer sam­kvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lög­sögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fisk­veiðilandhelgi Íslands.

Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla gilda ákvæði laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólög­mæts sjávarafla.

 

20. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 972/2022, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2022/2023 og reglu­gerð nr. 973/2022, um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta á fiskveiðiárinu 2022/2023.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. ágúst 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. ágúst 2023