Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:

Leiðrétt 1. apríl 2025:
HTML-texti og PDF-skjal: Í stað „Náttúrufræðistofnun Íslands“ hvarvetna í gjaldskránni komi, í viðeigandi beygingarmynd: Náttúrufræðistofnun.


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 345/2025

Nr. 345/2025 17. mars 2025

GJALDSKRÁ
fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

1. gr.

Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir rannsóknir og ráðgjöf sem falla undir 3. gr. laga nr. 54/2024 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur s­kv. 6. gr. laga nr. 54/2024. Gjald fyrir hverja klukkustund skal vera eftirfarandi án vsk:

a. Fyrir sérfræðinga I kr. 21.700
b. Fyrir sérfræðinga II kr. 19.400
c. Fyrir sérfræðinga III kr. 17.100

 

2. gr.

Skordýra- og sveppagreiningar.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir greiningu á skordýrum og myglusveppum s­kv. 6. gr. laga nr. 54/2024.

Gjaldið skal vera kr. 4.300 fyrir skordýragreiningu til almennings.

Fyrir greiningu á myglusveppum í mannvirkjum skal innheimta tímagjald skv. 1. gr. gjald­skrárinnar.

 

3. gr.

Útgáfa rita.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir útgáfu rita skv. 6. gr. laga nr. 54/2024. Gjald fyrir hvert rit skal vera eftirfarandi án vsk:

a. Fyrir fjölrit Náttúrufræðistofnunar kr. 1.700
b. Fyrir Blika kr. 2.000

 

4. gr.

Útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi fyrir rannsóknar­sýni skv. 6. gr. laga nr. 54/2024.

Gjaldið skal vera kr. 61.000.

 

5. gr.

Útflutningsleyfi fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi til almennings fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr skv. 6. gr. laga nr. 54/2024.

Gjaldið skal vera kr. 8.900.

 

6. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 54/2024 um Náttúrufræði­stofnun Íslands og náttúrustofur.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 314/2024 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 17. mars 2025.

 

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Björn Helgi Barkarson.


B deild - Útgáfud.: 31. mars 2025