Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 361/2021

Nr. 361/2021 17. mars 2021

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, staðfest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu náms­brauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntöku­skilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðal­námskrá framhaldsskóla. Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga. Hinar staðfestu náms­brautar­lýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

 

2. gr.

Heiti námsbrautar Raðnúmer
Félagsliðabraut, félagsliði, hæfniþrep 3 (21-479-3-9)
Fjölnámsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 (21-488-1-12)
Grunnbraut hársnyrtiiðn, grunnnám starfsgreina, hæfniþrep 2 (21-475-2-5)
Opin stúdentsbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (21-487-3-7)

 

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

 

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 17. mars 2021.

 

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Páll Magnússon.


B deild - Útgáfud.: 31. mars 2021