Samkvæmt 2. og 4. mgr. 4. gr. laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997 með síðari breytingum, hefur ráðherra þann 17. mars 2020 staðfest tillögur hættumatsnefndar Seyðisfjarðarkaupstaðar að endurskoðuðu hættumati vegna ofanflóða fyrir Seyðisfjörð. Hættumatið hefur verið auglýst og kynnt í samræmi við 2. mgr. 4. gr. laga nr. 49/1997, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða. Hættumatið öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. júlí 2020.
F. h. r.
Hugi Ólafsson.
|