Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 10/2023

Nr. 10/2023 17. mars 2023

LÖG
um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi (búsetuskilyrði stjórnenda).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

I. KAFLI

Breyting á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 52. gr. laganna:

  1. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkisborgarar aðildarríkja eru undan­þegnir búsetuskilyrðum.
  2. Á eftir orðinu „veita“ í 3. málsl. kemur: ríkisborgurum annarra ríkja.

 

II. KAFLI

Breyting á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 5. mgr. 40. gr. laganna:

  1. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkisborgarar aðildarríkja eru undan­þegnir búsetuskilyrðum.
  2. Á eftir orðinu „veita“ í 3. málsl. kemur: ríkisborgurum annarra ríkja.

 

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört í Reykjavík, 17. mars 2023.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 28. mars 2023