Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt eftirfarandi skipulagsáform:
Úr landi Miðdals, L125371, frístundalóð, nýtt deiliskipulag – 529-F. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti 16. ágúst 2023, nýtt deiliskipulag fyrir frístundalóð í landi Miðdals, L125371. Deiliskipulagið hefur fengið afgreiðslu skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag við Hríshöfða, á 1,1 ha landi. Heimilt er að byggja eitt frístundahús allt að 200 m². Aðkoma er um sameiginlega einkavegi er tengjast Nesjavallavegi um Lynghólsveg, vestan Dallands.
Laxatunga 43, deiliskipulagsbreyting – 104-Íb. Skipulagsfulltrúi samþykkti á afgreiðslufundi 1. september 2023 deiliskipulagsbreytingu fyrir Laxatungu 43. Breytingin hefur fengið afgreiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að heimilt verður að byggja bílskúr undir húsi með samliggjandi niðurkeyrslu að Laxatungu 41. Skilgreind er ný húsagerð E-IIG fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með bílageymslu í kjallara. Hámarksmænishæð húss er 5,5 m frá gólfkóta fyrstu hæðar. Bundin byggingarlína við götu er felld niður.
Þverholt 9-21, deiliskipulagsbreyting – 116-M. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti 30. ágúst 2023, deiliskipulagsbreytingu fyrir Þverholt 9-21. Deiliskipulagsbreytingin hefur fengið afgreiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að fjölga bílastæðum um fimm við bakhús að Þverholti 19. Samhliða er núverandi frágangur á svæðinu, við Þverholt 11-15 færður í skipulag.
Tengibraut við Vogatungu, deiliskipulagsbreyting – 104-Íb. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti 30. ágúst 2023, deiliskipulagsbreytingu fyrir tengibraut við Vogatungu. Deiliskipulagsbreytingin hefur fengið afgreiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér frágang á tengibraut í Leirvogstunguhverfi, frá Vesturlandsvegi að Fossa- og Vogatungu til samræmingar við áætlun um hraðaminnkandi aðgerðir.
Ofangreint skipulag og skipulagsbreyting hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 6. september 2023,
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.
|