Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1054/2022

Nr. 1054/2022 12. september 2022

GJALDSKRÁ
fyrir gjöld á bílastæðum í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum.

Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum eru eftirfarandi:

  1. 410 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 1.
  2. 210 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 2.
  3. 210 krónur á klukkustund fyrir fyrstu tvær klukkustundirnar en 60 krónur á klukkustund eftir það, á gjaldsvæði 3.
  4. 210 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 4.

 

2. gr.

Gjald fyrir bílastæðakort íbúa í Reykjavík.

Gjald fyrir bílastæðakort íbúa er eftirfarandi:

  1. 1.250 kr. á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.
  2. 2.500 kr. á mánuði fyrir aðrar bifreiðar.

 

3. gr.

Gildistaka og lagastoð.

Gjaldskrá þessi sem sett er með heimild í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum og á sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 951/2021.

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 12. september 2022.

 

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 16. september 2022