Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 152/2020

Nr. 152/2020 29. desember 2020

LÖG
um breytingu á lögum um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019 (breytt aldursviðmið).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

    Í stað orðanna „18 ára“ í 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 15 ára.

 

2. gr.

    Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

    Takmörkun 1. mgr. á ekki við um einstaklinga undir 18 ára aldri.

 

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

4. gr.

    Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um mannanöfn, nr. 45/1996: Í stað orðanna „18 ára“ í 4. mgr. 13. gr. og 1. málsl. 7. mgr. 14. gr. laganna kemur: 15 ára.

 

Gjört á Bessastöðum, 29. desember 2020.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 5. janúar 2021