Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 981/2019

Nr. 981/2019 25. október 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 381/2019 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tvær nýjar málsgreinar svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) 2019/460 frá 30. janúar 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2012 að því er varðar skrána yfir aðila sem njóta undanþágu skal gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2019 frá 11. apríl 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 18. júlí 2019, bls. 23. Reglugerðin er birt í EES-við­bæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 38/2019 frá 16. maí 2019, bls. 156-157.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) 2019/565 frá 28. mars 2019 um breytingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2205, framseldri reglu­gerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/592 og framseldri reglugerð framkvæmda­stjórnar­innar (ESB) 2016/1178 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 að því er varðar daginn þegar stöðustofnunarskyldan tekur gildi fyrir tilteknar gerðir samn­inga skal gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2019 frá 11. apríl 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 57 frá 18. júlí 2019, bls. 25. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi ESB nr. 38/2019 frá 16. maí 2019, bls. 160-162.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mót­aðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 25. október 2019.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.


B deild - Útgáfud.: 8. nóvember 2019