Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, garðyrkjulóðir við Garðastíg. Gerð er breyting á deiliskipulagi vegna garðyrkjulóða við Garðastíg á Flúðum. Í breytingunni felst að sett er kvöð um göngustíg meðfram austanverðum Garðastíg. Ný lóð er gerð fyrir dælustöð á lóð nr. 2 við Garðastíg og fær hún heitið Garðastígur 2A. Samþykkt í sveitarstjórn 4. maí 2021.
Deiliskipulagsbreyting, Grafarbakki II, spilda 1, L208830, Laufskálabyggð. Gerð er óveruleg breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar Laufskálabyggðar í landi Grafarbakka II. Breytingin felur m.a. í sér að felld er út 6 metra breið landræma á milli lóða 7 og 9 sem hafði verið sett inn í fyrri deiliskipulagsbreytingu. Lóð nr. 9 stækkar sem nemur breytingu. Staðsetning rotþróar færist til og sett er kvöð á lóðir 7 og 9 um aðkomu þjónustubíla að rotþró og siturlögn. Samþykkt í sveitarstjórn 8. apríl 2021.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 21. maí 2021.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|