Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 793/2017

Nr. 793/2017 23. ágúst 2017

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga, nr. 502/2012.

1. gr.

Við 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 4. töluliður, sem orðast svo:

Fyrirframgreiðslur vegna uppgjörs A deildar Brúar lífeyrissjóðs: Draga skal frá heildarskuldum eftir­stöðvar fyrirframgreiðslna vegna Varúðarsjóðs og Lífeyrisaukasjóðs vegna framlaga sveitar­félags í tengslum við uppgjör A deildar Brúar lífeyrissjóðs, sbr. bráðabirgðaákvæði við reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 64. gr. og 81. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 23. ágúst 2017.

Jón Gunnarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. september 2017