Helluvað 2, Rangárþingi ytra, deiliskipulag. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti þann 16. apríl 2020 tillögu að deiliskipulagi fyrir Helluvað 2. Deiliskipulagið nær til um 8 ha landspildu í landi Helluvaðs 2 í Rangárþingi ytra (landnr. 164511) sem í heild er um 23 ha samkvæmt fasteignaskrá. Deiliskipulagið tekur til byggingar íbúðarhúss, gestahúss og skemmu. Aðkoma að svæðinu er af Suðurlandsvegi um Þrúðvang í gegnum Hellu og áfram um nýjan aðkomuveg. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hellu, 13. júlí 2020.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|