Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulag, Skyggnir, L197781. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda innan svæðisins. Gert er ráð fyrir íbúðarhúsi ásamt bílskúr, útihúsi auk gestahúss á þremur byggingarreitum. Samþykkt í sveitarstjórn 13. apríl 2021.
Deiliskipulag, Stórhólmi, L211525. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda fyrir íbúðarhús, reiðhöll og hesthús. Samþykkt í sveitarstjórn 9. febrúar 2021.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 21. maí 2021.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|