Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 53/2020

Nr. 53/2020 12. júní 2020

LÖG
um breytingu á lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, með síðari breytingum (sóttvarna- og einangrunarstöðvar).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

    Í stað 5. mgr. 2. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

    Dýrum sem eru flutt inn án heimildar eða sleppa úr flutningsförum skal tafarlaust lógað og fargað bótalaust á kostnað umráðanda svo eigi stafi hætta af. Matvælastofnun er þó heimilt að gefa kost á að slík dýr séu tafarlaust send úr landi sé smitvörnum ekki ógnað. Umráðamaður dýrs sem er flutt inn án heimildar skal þá tafarlaust gera ráðstafanir þar að lútandi á eigin kostnað. Sá sem er ábyrgur fyrir flutningi dýrs sem sleppur úr flutningsfari fyrir slysni skal á sama hátt tafarlaust gera ráðstafanir þar að lútandi á eigin kostnað. Á meðan ráðstafanir eru gerðar um afdrif dýra sem eru flutt inn án heimildar eða sloppið hafa úr flutningsförum skal einangra þau í vörslu Matvæla­stofn­unar. Eggjum, sæði eða fósturvísum skal á sama hátt eyða eða senda úr landi á kostnað inn­flytjanda, svo og dýrum sem sædd kunna að hafa verið eða notuð sem fósturmæður og afkvæmum sem kunna að hafa fæðst eftir ólögmætan innflutning. Matvælastofnun er þó heimilt að láta fram­kvæma áhættumat með tilliti til smitvarna áður en ákvörðun um ráðstöfun er tekin skv. 6. málsl. og getur á grundvelli þeirrar niðurstöðu heimilað dvöl á landinu að uppfylltum skilyrðum.

    Innflutningi samkvæmt lögum þessum telst lokið þegar öll skilyrði innflutnings hafa verið uppfyllt að mati Matvælastofnunar.

 

2. gr.

    7. gr. laganna orðast svo:

    Vegna innflutnings á dýrum og erfðaefni er heimilt að starfrækja sóttvarna- og einangr­unar­stöðvar. Stöðvarnar skulu hafa leyfi til reksturs og lúta eftirliti Matvælastofnunar. Ráðherra ákveður með reglugerð, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, hvaða kröfur skuli gerðar til sóttvarna- og einangrunarstöðva. Matvælastofnun getur heimilað innflytjendum að annast einangrun einstakra dýra í þeirra eigu, að uppfylltum skilyrðum um smitvarnir og aðbúnað sem sett eru og undir eftirliti Matvælastofnunar.

 

3. gr.

    15. gr. laganna orðast svo:

    Komi upp alvarlegur smitsjúkdómur, óeðlileg eða óútskýrð afföll eða ef rökstuddur grunur er um smitsjúkdóm í sóttvarna- eða einangrunarstöð er Matvælastofnun heimilt að gera hverjar þær ráð­stafanir sem þurfa þykir til að útrýma sjúkdómi eða hindra útbreiðslu hans og til að afstýra hættu og tjóni, m.a. lóga dýrum ef nauðsyn krefur og gera ráðstafanir til að stöðva dreifingu erfða­efnis. Sama á við um heimasóttkví. Rekstraraðili sóttvarna- eða einangrunarstöðvar ber allan kostnað af slíkum aðgerðum og er skylt að hlíta fyrirmælum Matvælastofnunar.

    Innflytjendur eiga ekki rétt á bótum úr ríkissjóði fyrir dýr sem þarf að lóga eða erfðaefni sem eyða þarf vegna slíkra aðgerða. Sama á við um eigendur dýra sem eru í heimasóttkví.

    Hlíti rekstraraðili eða eigandi ekki fyrirmælum Matvælastofnunar skulu aðgerðir skv. 1. og 2. mgr. framkvæmdar með aðstoð lögreglu. Sé um heimasóttkví að ræða er þó ekki heimilt að fara í þessum tilgangi í íbúðarhús, útihús eða aðra viðlíka staði án samþykkis eiganda eða umráðamanns húsnæðisins nema að fengnum dómsúrskurði. Fylgja skal ákvæðum laga um meðferð sakamála um leit og hald á munum.

 

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört á Bessastöðum, 12. júní 2020.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Kristján Þór Júlíusson.


A deild - Útgáfud.: 18. júní 2020