Atvinnusvæði sunnan Suðurlandsvegar á Hellu, deiliskipulag. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14. október 2021 tillögu að deiliskipulagi fyrir atvinnusvæði sunnan Suðurlandsvegar á Hellu. Um er að ræða svæði austast í þéttbýlinu, verslunar- og þjónustusvæðið VÞ20, athafnasvæðið AT4 og iðnaðarsvæðið I26. Í deiliskipulaginu verða afmarkaðar lóðir, settir byggingarskilmálar og gerð grein fyrir götum, bílastæðum o.fl. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hellu, 11. nóvember 2021.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|