Hinn 26. apríl 2018 var aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins afhent fullgildingarskjal Íslands vegna samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, sem gerður var í Istanbúl 11. maí 2011. Samningurinn öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 1. ágúst 2018.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 5. júlí 2021.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
|