Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 138/2020

Nr. 138/2020 23. desember 2020

LÖG
um breytingu á lögum um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019 (kerfiskennitala og afhending upplýsinga úr þjóðskrá).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

    Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 11. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sama gildir um börn sem fæðast andvana eftir 22. viku meðgöngu.

 

2. gr.

    2. mgr. 24. gr. laganna orðast svo:

    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast 2. málsl. 3. mgr. 11. gr. um miðlun kerfiskennitalna gildi 1. maí 2021, ákvæði 2. mgr. 12. gr. um bann við heildarafhendingu þjóðskrár tekur gildi 1. júní 2022 og 4. mgr. 12. gr. um heimild Þjóðskrár Íslands til að takmarka og hafna afhendingu á upplýsingum tekur gildi 1. janúar 2021.

 

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört á Bessastöðum, 23. desember 2020.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Sigurður Ingi Jóhannsson.


A deild - Útgáfud.: 30. desember 2020