Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulag, Laugardælur, L166253, Laugardælur 4 og 5. Deiliskipulagið tekur til tveggja lóða fyrir íbúðarhús í landi Laugardæla, sem fá heitið Laugardælur 4, stærð 1.348 m² og Laugardælur 5, stærð 1.997 m². Heimilt verður að byggja allt að 300 m² á hvorri lóð og á lóð 5 verður heimilt að byggja véla- og útihús auk íbúðarhúss. Aðkoma að lóðunum er um Laugardælaveg nr. 3020. Samþykkt í sveitarstjórn 5. nóvember 2019.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 25. júní 2020.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|