Skipulagsstofnun staðfesti 17. mars 2021 breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 18. febrúar 2021. Rammahluti aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland nær yfir þróunarsvæði B í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Með rammahlutanum eru mörkuð nánari, og að hluta breytt, stefna um landnotkun, samgöngur, gæði byggðar og almenningsrýma auk fleiri þátta. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 17. mars 2021.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
|