Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 140/2019

Nr. 140/2019 7. febrúar 2019

REGLUGERÐ
um öryggisþætti á umbúðum mannalyfja.

1. gr.

Lögbært yfirvald.

Lyfjastofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds í skilningi ákvæða reglugerðar (ESB) 2016/161, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/83/EB að því er varðar ítarlegar reglur um öryggisþætti á umbúðum mannalyfja.

2. gr.

Sannprófun öryggisþátta og óvirkjun einkvæmra auðkenna lyfja.

Hér á landi skulu heildsölur sannprófa öryggisþætti og óvirkja einkvæmt auðkenni lyfja þegar þau eru afhent eftirtöldum aðilum sem hafa heimild til að kaupa lyf í heildsölu, sbr. 23. gr. reglugerðar (ESB) 2016/161 og 34. gr. reglugerðar nr. 699/1996 um innflutning og heildsöludreifingu lyfja:

  1. læknum og tannlæknum vegna lyfja til notkunar í starfi,
  2. dýralæknum vegna lyfja til notkunar í starfi og til sölu hjá lyfsölu dýralækna,
  3. háskólum og öðrum rannsóknarstofnunum sem vinna að rannsóknum á lyfjum,
  4. dvalar- og hjúkrunarheimilum sem tilheyra ekki rekstri heilbrigðisstofnunar,
  5. embætti landlæknis vegna kaupa á almennum bóluefnum auk inflúensubóluefnis.

3. gr.

Eftirlit.

Um eftirlit með reglugerð þessari fer skv. 48. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994, með síðari breytingum.

4. gr.

Viðurlög.

Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer skv. 49. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994, með síðari breytingum.

5. gr.

Innleiðing.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/161 frá 2. október 2015 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/83/EB að því er varðar ítarlegar reglur um öryggis­þætti á umbúðum mannalyfja öðlast gildi hér á landi við gildistöku reglugerðar þessarar, sbr. fylgiskjal með reglugerð þessari.

6. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. mgr. 7. gr., 12. gr., 34. gr. og 1. og 3. mgr. 50. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast gildi 9. febrúar 2019. Reglugerð þessi skal endurskoðuð innan 3 mánaða.

Heilbrigðisráðuneytinu, 7. febrúar 2019.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Einarsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 8. febrúar 2019