Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 329/2019

Nr. 329/2019 26. mars 2019

AUGLÝSING
um deiliskipulag fyrir íbúðar- og frístundabyggð að Unalæk, Fljótsdalshéraði.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 17. desember 2018 óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir íbúðar- og frístundabyggð að Unalæk sem samþykkt var í umhverfis- og framkvæmdanefnd þann 12. desember 2018. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 164/2019 sem fellur úr gildi.

Fljótsdalshéraði, 26. mars 2019.

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 9. apríl 2019