Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 2/2022

Nr. 2/2022 28. febrúar 2022

AUGLÝSING
um að samningur við Rússland um að greiða fyrir útgáfu vegabréfsáritana hafi tímabundið verið numinn úr gildi að hluta.

Hinn 27. febrúar 2022 var rússneskum stjórnvöldum afhent orðsending frá íslenskum stjórn­völdum varðandi samning milli ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins um að greiða fyrir útgáfu vegabréfsáritana fyrir ríkisborgara Íslands og Rússneska sambandsríkisins, sem gerður var í New York 24. september 2008, og birtur í C-deild Stjórnartíðinda með auglýsingu nr. 1/2022.

Með orðsendingunni var tilkynnt að íslensk stjórnvöld hefðu ákveðið að nema samninginn tíma­bundið úr gildi að hluta frá og með 2. mars 2022.

Orðsendingin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari, en eingöngu á ensku á grundvelli heimildar 2. mgr. 4. gr. laga nr. 15/2005.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 28. febrúar 2022.

 

Bjarni Benediktsson.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 1. mars 2022