Samkvæmt heimild í 81. gr. og 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, í samræmi við gildandi deiluskipulag Vestmannaeyja og að fengnum tillögum frá umhverfis- og skipulagsráði Vestmannaeyjabæjar hefur lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum ákveðið eftirfarandi:
- Hamarsvegur, íþróttasvæði við Hástein.
- Bifreiðastöður eru bannaðar sunnanmegin við Hamarsveg frá Áshamri að Brekkugötu.
- Bifreiðastöður eru bannaðar norðanmegin við Hamarsveg frá Brekkugötu að Dalvegi.
- Kertaverksmiðja.
- Biðskylda verður á útkeyrslu af bifreiðastæði norðan við Faxastíg 46 gagnvart umferð um Hlíðarveg. Innakstur verður bannaður af Hlíðarvegi inn á bifreiðastæði.
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, 5. júní 2019.
Páley Borgþórsdóttir.
|