Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 864/2021

Nr. 864/2021 7. júlí 2021

AUGLÝSING
um (4.) breytingu á gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands nr. 1257/2018 fyrir þjónustu sérgreinalækna sem ekki hefur verið samið um.

1. gr.

Eftirfarandi breyting verður á fylgiskjali með gjaldskránni:

Við kafla fyrir húðlækningar bætist eftirfarandi málsgrein: Sé verk ekki unnið af húðlækni, heldur af aðstoðarmanni læknis, er óheimilt að krefja SÍ um greiðslu vegna þess verks.

 

2. gr.

Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskrá, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og reglugerð nr. 1255/2018, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Sjúkratryggingum Íslands, 7. júlí 2021.

 

Ingibjörg Þorsteinsdóttir.

Júlíana H. Aspelund.


B deild - Útgáfud.: 21. júlí 2021