Höfuðból, lóðir 111 og 112, óveruleg breyting á deiliskipulagi. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 15. apríl 2021 tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi svæðisins frá síðustu breytingu dagsettri 11. ágúst 2020 þar sem lóð 112 var færð í heild sinni til austurs. Breytingin nú er fólgin í að stækka lóð nr. 112 ásamt því að breyting er gerð á legu göngustígs í gegnum lóðina og settar fram tilheyrandi kvaðir vegna þess. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi. Eldri skipulagsáætlanir haldast óbreyttar.
Litlavík, óveruleg breyting á deiliskipulagi. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 15. apríl 2021 tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi dagsettu 21. mars 2018 um að breyting verði gerð á texta varðandi byggingarmagn. Stærð bygginga fari úr 150 m² í 250 m² og mænishæð íbúðarhúss hækkar úr 6 m miðað við gólfhæð húss í 7 m. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi. Eldri skipulagsáætlanir haldast óbreyttar.
Bjargstún, deiliskipulag. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 15. apríl 2021 tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina Bjargstún. Áform eru um að byggja íbúðarhús og útihús á lóðinni. Tillagan var endurauglýst vegna tímaákvæða í skipulagslögum frá og með 17. febrúar 2021 til og með 31. mars 2021. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hellu, 15. apríl 2021.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|