Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 740/2022

Nr. 740/2022 7. júní 2022

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 500/2011 um doktorsnám við félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 53. gr. reglnanna:

  1. Fyrirsögn greinarinnar verður: Einingafjöldi, doktorsritgerðir og doktorsmálstofur.
  2. Á eftir 1. mgr. bætast við þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Um doktorsritgerðir gildir eftirfarandi:
    Samsettar doktorsritgerðir. Fjöldi greina skal að lágmarki vera þrjár. Af þessum þremur (að lágmarki) skulu tvær greinar vera samþykktar til birtingar, og þriðja greinin komin vel áleiðis í ritrýniferli, þ.e. samþykki fyrir endurvinnslu og endursendingu til ritstjórnar tímarits (e. revise and resubmit). Greinar skulu birtar í alþjóðlegum viðurkenndum tímaritum og skal birtingarvettvangur greinanna standast viðmið Scopus, Web of Science eða efsta flokks í norrænum gagnagrunnum.
    Doktorsritgerð sem heildstætt verk. Ef nemandi velur að skrifa eitt heildstætt verk (e. monograph) skal framlag þess verks vera sambærilegt ofantöldum kröfum.
    Doktorsmálstofur. Doktorsnemendur í viðskiptafræðideild þurfa meðan á doktorsnámi stendur að kynna verkefni sín að lágmarki einu sinni á ári á doktorsmálstofu deildar. Kynning verkefna á doktorsmálstofu er skylda og fá nemendur 2 ECTS-einingar fyrir hverja málstofu. Fullnægjandi námsárangri hvers árs telst ekki náð fyrr en lágmarkskrafan er uppfyllt.

 

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar hafa verið samþykktar af viðskiptafræðideild, stjórn félagsvísindasviðs og Miðstöð framhalds­náms, sbr. 66. og 69. gr. reglna nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 7. júní 2022.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 22. júní 2022